Monday, January 29, 2007

Halelúja

Fengum saumadömur til að stinga í svarta leðurlíkið

Svo er bekkurinn líka stunginn


Mælaborðið að taka á sig mynd



Núna er ég glaður maður. Teppin komin í hús og mátun í gangi eins og myndir sýna. Svo er mælaborðið í málun og bólstrun en það ætti að verða tilbúið að mestu í næstu viku.

En Jesúbarnið að þessu sinni er bekkurinn aftur í. Eins og ALLIR sjá þá er þetta beautiful hylur og þetta verður enn þá betra þegar framsætin koma úr bólstrun en þau eiga að koma í vikunni.

Svo má nefna það að krómstuðarinn að framan er kominn á og allar hliðar innan í bílnum eru tilbúnar eftir bólstrun.Það er s.s. allt að smella saman, flestir hlutir tilbúnir eða á leiðinni í hús. Hell yeah!!

2 Comments:

Blogger Þorsteinn Snæland said...

til gamans má geta að pabbi er snillingurinn í þessu öllu saman. hann sefur varla á næturnar þar sem hann er alltaf að brainstorma um þetta og hitt í bílnum. auk þess er hann alltaf e-ð að bauka í bílnum á meðan ég er að læra á kvöldin.

enda er hann með netta reynslu í þessum bransa, ekki slæmt það!!

4:18 PM  
Anonymous Anonymous said...

Nú, ég hélt að þú værir að bauka við bílinn. Var einmitt að velta því fyrir mér hvernig þú vissir svona mikið um þetta.

4:25 PM  

Post a Comment

<< Home