Já er svarið!
Já þetta var búinn að vera fáranlega erfiður dagur í vinnunni. Í lok dags átti svo stóra stundin renna upp. Það sem ég var búinn að bíða eftir í "akkúrat" næstum eitt ár, sprautun á Willysnum með endalausum loforðum sprautarans hingað og þangað til að krydda tilveruna.
Nema hvað þá sem aldrei fyrr þá vildi hann bara ekki starta! Það var reynt í nokkur þúsund ár en án árangurs. Þá má ekki gleyma því að ég var að missa af stúdentsveislu félaga míns. Sem sagt þetta var allt í toppmálum...einmitt
Þá var ég svona nett kominn með nóg og það styttist í að maður myndi breytast í þreyttan grenjandi krakka í Smáralind með ís á enninu og slím á höndunum. Þarna hefði ég venjulega skammast út í allt sem hreyfist en ég gerði það ekki, ok a.m.k. ekki eins og venjulega. Ég sparkaði ekki einu sinni í dekkin á bílnum! Það sem ég gerði var að telja upp að 10 í fjórða eða s.s. þegja í svona 2 klukkutíma.
Það sem ég er að segja er að ég hefði ekki brugðist svona vel við atviki sem þessu fyrir u.þ.b. 4 mánuðum síðan. Þá hefði allt og ekkert sogast í svartholuna "Þorstein".
Ef þið breytist stundum í svarthol þá vísa ég ykkur á þessa geit, sbr. mynd 1. Hún segir allt sem segja þarf.

7 Comments:
Þessi færsla er alveg laus við ýkjur
say no more bro!hvad er annars ad fretta?segdu mer e-d.
knus
hb
það styttist í skype!
http://www.blogg.central.is/veidimennirnir
Sælir,búinn að stofna smá blogg
kv.ari
Koma svo!
Bóas hefur rétt fyrir sér.
jahá!eg er enn i profum litli vinur, varstu alveg buin ad gleyma thvi?!geturdu ekki sett eina mynda af litla t?
knus ur crazy hita
hb
ps.skype i kvold eda hvenær?
Post a Comment
<< Home